Stóllinn 2023/2024 er kominn út

Glæsilega forsíðan í ár...
Glæsilega forsíðan í ár...

Nýr árgangur af Stólnum, kynningarblaði körfuknattleiksdeildar Tindastóls, er kominn í dreifingu en það er kkd. Tindastóls og Nýprent sem gefa blaðið út. Starfsfólk Nýprents hafði veg og vanda af efnisöflun og skrifum ásamt nokkrum gestaskrifurum en það er svo Davíð Már Sigurðsson sem á meginpart myndanna í Stólnum.

Efnistökin eru sígild en rætt er við þjálfara meistaraflokks karla og kvenna, Pawel Ermolinski og Helga Frey, auk þess sem talað er við Tóta túrbó og Emese Vida. Ágúst Ingi segir frá, á sinni alkunnu snilld, þegar meistaraflokkur karla komst í fyrsta skiptið upp í úrvalsdeildina, farið er yfir ferilinn hans Helga Rafns og ýmislegt fleira skemmtilegt er í blaðinu sem enginn má missa af.

Blaðinu er dreift í hús á Króknum í kvöld og á morgun en einnig verður hægt að nálgast Stólinn í Olís Varmahlíð og KS Hofsósi og á völdum stöðum á Króknum. Þá er ekki ólíklegt að einhver blöð slæðist með Tindastólsliðunum í útileiki og hægt að finna rafræna útgáfu Stólsins hér á Feyki.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir