Yfirlýsing frá körfuknattleiksdeild Tindastóls

Í hádeginu í dag mátti lesa fréttir þar sem sagt var að grunur væri um veðmálasvindl tengdum leik Tindastóls og ÍR sem fram fór í Reykjavík í gær. Kom fram í frétt Vísis.is að grunur beindist að leikmönnum Tindastóls en ekki ÍR. Staðfesti formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson, að sambandið væri með málið til skoðunar. Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur nú sent frá sér yfirlýsingu um málið.

„Stjórn körfuknattleiksdeild Tindastóls harmar þær fréttir sem eru að berast um meint veðmálasvindl i tengslum við leik Tindastóls og ÍR í Dominosdeild karla í gærkveldi. Lítur stjórnin málið alvarlegum augum, enda á veðmálasvindl ekkert erindi við okkar íþrótt. 

Treystum við KKÍ og munum við aðstoða þau að öllum mætti við rannsóķn málsins og vonumst við til að rannsókn málsins verði víðtæk og öflug, og leiði sannleikann í ljós sem allra fyrst. Að því sögðu frábiðjum við okkur að leikmenn Tindastóls erlendir sem innlendir taki þátt í nokkurs konar veðmálasvindli. Við höfum enga trú á að leikmaður Tindastóls hafi á nokkurn hátt tekið þátt í nokkurs konar svindli.

F.h Stjórnar kkd Tindastóls 
Ingólfur Jón Geirsson formaður“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir