Landsmót SAMFÉS fer fram á Blönduósi um helgina
Dagana 3.–5. október verður Landsmót Samfés haldið á Blönduósi. Samkvæmt frétt Húnahornsins má búast við að um 360 ungmenni frá 80 félagsmiðstöðvum leggi leið sína til Blönduóss, auk 80 starfmanna mótsins. Landsmót Samfés, sem haldið er að hausti ár hvert, var haldið í fyrsta sinn á Blönduósi 1990 þar sem 25 aðildarfélagar Samfés komu saman. Þetta er því í 35. sinn sem mótið er haldið og ríkir mikil eftirvænting í bænum og á meðal þátttakenda.
Á mótinu verður líf og fjör á Blönduósi og Skagaströnd þegar ungmenni hittast til skemmtunar, náms og lýðræðislegrar þátttöku.
Dagskrá Landsmótsins er skipt í þrjá meginþætti:
- Smiðjur: Alls verða um 20 smiðjur haldnar á Blönduósi og Skagaströnd. Þar fá þátttakendur að fræðast, skapa og deila hugmyndum sem þau taka með sér heim í sínar félagsmiðstöðvar.
- Félagslíf: Lögð er áhersla á að ungmennin kynnist nýju fólki, styrki vináttutengsl og hafi gaman saman.
- Landsþing ungs fólks: Lokadagur mótsins er tileinkaður lýðræðislegri umræðu. Ungmennaráð Samfés sér um undirbúning þingsins þar sem þátttakendur ræða málefni sem skipta þau máli og samþykkja ályktanir sem sendar verða áfram til ráðuneyta, sveitarfélaga, fjölmiðla og aðildarfélaga Samfés.
Á Landsmótinu fer einnig fram lýðræðisleg kosning í Ungmennaráð Samfés, sem er málsvari ungs fólks innan samtakanna. Kosið er í öllum níu kjördæmum landsins, tveir fulltrúar úr hverju kjördæmi. Þeir sitja annaðhvort til eins árs eða tveggja, þannig að ráðið er skipað alls 27 fulltrúum á aldrinum 13–16 ára.
Ungmennaráð gegnir lykilhlutverki í því að miðla niðurstöðum Landsþings og tryggja að raddir ungs fólks heyrist í samfélaginu.
Þegar svona margir unglingar koma saman skapast sérstök stemning. Það verður því líf og fjör á Blönduósi og Skagaströnd um helgina. Íbúar eru hvattir til að taka vel á móti öllum sem sækja Landsmót Samfés um helgina.
Heimild: Húni.is