Rabb-a-babb 204: Vivian

Vivian Didriksen Ólafsdóttir. AÐSEND MYND
Vivian Didriksen Ólafsdóttir. AÐSEND MYND

Nafn: Vivian Didriksen Ólafsdóttir.
Árgangur: 1984.
Fjölskylduhagir: Einstæð móðir.
Búseta: Mosfellsbær
Hverra manna ertu og hvar upp alin: Foreldrar eru Ólafur Andrésson (Mosfellsdal) og Rita Didriksen (Færeyjar). Fæddist í Færeyjum, ólst upp hér og þar, aðallega þar.
Starf / nám: Er starfandi leikkona.
Hvað er í deiglunni: Frumsýningar og uppsöfnuð wrap-partý eftir covid. 


Rabbið:

Hvernig nemandi varstu? Örugglega óþolandi, ætla að nota tækifærið og þakka gömlum kennurum fyrir kærleikann og þolinmæðina.

Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Að mamma mín og pabbi voru undir sama þaki, úff.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Allt, þess vegna er ég leikkona í dag.

Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Það sem stendur mest uppúr er blað og blýantur, teiknaði rosalega mikið.

Besti ilmurinn? Af nýfæddum börnunum mínum.

Hvar og hvenær sástu núverandi maka þinn fyrst? Ég er svo makalaus eða ég er makalaus, svo svarið er pass.

Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Hef alltaf verið alæta á tónlist, en kannski það sem stóð uppúr þá og gerir ennþá í dag er rapp, jazz/blues og klassísk sinfónía.

Hvernig slakarðu á? Ég er ekkert sérstaklega góð í að slaka á en auðvitað gerir maður alls konar og nær sér í smá slökun í leiðinni. Ég er aðallega að nota tónlist í dag og tek oft brjálaða dansa hérna heima. Þetta er svona aktív hugleiðsla sem er góð leið fyrir ofvirkan huga. Ég gæti ekki sest niður og hugleitt hefðbundið þó ég ætti lífið að leysa, hausinn á mér gersamlega springur!

Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Áramótaskaupinu.

Besta bíómyndin? Það er ómögulegt að eiga eina uppáhalds bíómynd. Ég dýrka t.d. 80’s/90’s spennu og ævintýramyndir eins og Goonies eða Batman Returns svo ég nefni einhver dæmi. Í dag eru þessar myndir orðnar svo sérstakt bragð, ef ég mætti orða það þannig. Þessar myndir einkennast af hraðri og skemmtilegri kvikmyndagerð, geggjuðum hljóðheim, leikstíl sem er í raun órealískur eða jafnvel lélegur, ýktum karakterum, húmor og kaldhæðni, dulúð, létt rómantík og vondum körlum sem deyja – bíó sem er feitur hamborgari með frönskum og nóg af allri sósu klikkar aldrei.

Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Þetta er allt saman flott fólk, fylgist lítið sem ekkert með íþróttum.

Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Þar sem að ég er eina fullorðna manneskjan á heimilinu, þá geri ég ýmislegt betur.


Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ég er snillingur að gera heilandi mat, þá meina ég mat sem bústar meltingarveg og þar af leiðandi ónæmiskerfið.

Hættulegasta helgarnammið? Lakkrís.

Hvernig er eggið best? Steikt báðu megin eða linsoðið.

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Ég er roooosalega hvatvís, það fer að verða soldið þreytt.

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Fólk sem vill ekki að sjá, fólk sem vill ekki skilja og fólk sem talar niður það sem það sér ekki og skilur ekki. 


Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun? Neyðin kennir naktri konu að spinna. 


Hver er elsta minningin sem þú átt? Ég á mjög gamla minningu. Hef verið um eins árs. Er að labba inn gang á heimilnu mínu þá, er bara í bleyju og pínu völt, man eftir þeirri tilfinningu. Er einhverja hluta vegna með egg í hendinni og er eitthvað að reyna að fela það, dett niður og eggið brotnar undir ofni á ganginum. Ég man að ég hugsaði: „Þetta er örugglega ekki gott,“ á meðan ég var að hræra í eggjarauðunni með puttunum.

Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Ég myndi vilja prófa vera í eldgömlum líkama, held að ég myndi læra að meta svo margt enn meira eftir það. Segjum bara Anthony Hopkins, hann er líka alltaf að gera eitthvað skemmtilegt. Og þá myndi ég líka fá að upplifa hvernig það er að vera með tippi... en svona án þess að hugsa of mikið um ástandi tippis á þeim manni.

Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur? Dóri DNA, af því að hann er ógeðslega fyndinn og klár.

Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Er með æði fyrir orðinu mental load akkúrat núna. Þetta er orð sem inniheldur svo margar tilfinningar – svo gott að geta sagt eitt orð í staðinn fyrir að tjá sig um alls konar í allar áttir.

Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Tarantino, Wes Anderson og Spielberg, allt leikstjórar sem ég elska. Myndi auðvitað passa mig á að hafa vel af víni með þessum dinner og plata þá til að gera sitthvora bíómyndina þar sem ég er í aðalhlutverki.

Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Veistu, mér líður oft einsog ég sé nú þegar stödd í fornöld varðandi svo margt í þessum heimi. En ætli það væri ekki áhugavert að taka eitt gott spjall við Jesú? En nú fer ég að hugsa, kannski er búið að finna upp tímavél í framtíðinni og einhver snilli fór aftur í tímann, rambaði á einhvern Jesú, upplýsti hann um alls konar og þess vegna varð Jesú svona meðvitaður gaur. Pæling.

Hver væri titillinn á ævisögu þinni? FML

Framlenging:

Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... 
Akkúrat núna, bara eitthvert þar sem er sól og ódýrt að lifa, bið ekki um meir.

Bucket list spurningin: Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Flytja eitthvert til Asíu með börnin mín og upplifa með þeim nýjan heim, teygjustökk og synda með hákörlum, sem er auðvitað Bucketlist klassík. Er til íslenskt orð yfir Bucketlist?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir