Rabb-a-babb 111: Kiddi Hjálmars

Nafn: Kristinn Hjálmarsson
Árgangur: 1973
Fjölskylduhagir: Kvæntur yndislegri dömu að handan. Eigum tvö börn, 21 árs dóttur og 6 ára gutta.
Búseta: Búum í G-town.
Hverra manna ertu og hvar upp alinn: Ég sonur Signýjar Bjarnadóttur og Hjálmars Jónssonar. Alinn upp á Króknum, bjó fyrstu árin í Þýskalandi (rauða húsið við Kirkjutorgið) og svo í Víðihlíð 8.
Starf / nám: Starfa í sjávarútvegi, annars vegar að „selja fisk til annarra landa“ eins og sonur minn skýrir það út fyrir öðrum og hins vegar hjá fyrirtæki í eigu 39 sjávarútvegsfyrirtækja sem passar uppá sjálfbærni auðlindarinnar með alþjóðlegri vottun á fiskistofna og veiðiaðferðir. Í frítímanum er ég að læra spænsku, bara hobbí.
Hvað er í deiglunni: Það er vetrarfrí í Flataskóla í næstu viku, við ætlum að pakka skíðadótinu í bílinn og renna á Krókinn og rifja um gamla ryðgaða skíðatakta.

Hvernig nemandi varstu?  Ég var alla vega lengi nemandi. Kannski lengi að læra. Í grunnskóla var ég bara samviskusamur nemandi, í fjölbraut var ég samviskusamur í félagslífi á vegum skólans og eftir það var skóli eins og vinna – mæta og reyna að standa sig.

Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum?
Bjarni afi minn í Bjarnarhöfn gaf mér kíki og honum fylgdi samræða um vitundina fyrir umhverfi sínu og geta lesið í aðstæður. Það er hlýjan og hugurinn sem fólst í þessu stutta samtali sem ég man svo vel.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? 
Mig minnir að ég hafi aldrei spáð sérstaklega í það, nema verða rithöfundur, þegar ég var lítill langaði mig að skrifa bók, skáldsögu.

Hvað hræðistu mest? 
Ég er pínu lofthræddur, nema í flugvél. Þá er bara að halda kúlinu, ekkert til að grípa í ef maður missir fótanna.

Besti ilmurinn? Klárlega þegar maður er svangur á rölti um miðbæinn og matarilmur frá veitingastöðum situr um mann í hverju skrefi.

Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Það var eitthvað gott rokk, man ekki nafnið á hljómsveitinni en hún var með tónleika í reiðhöllinni í Reykjavík sumarið sem ég fékk bílpróf (gæti gúgglað það, en maður gúgglar ekki eigin minningar). Svo var það sænskt dúó, Siggi Levý var með það í botni allt þetta sumar á sjónum. Feginn að geta ekki raulað eitt stef úr þeirra lögum en man samt sérstaklega eftir Alana Miles og Black Velvet.

Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Tinu Turner, What‘s love got to do with it.

Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Í alvöru, þá horfi ég nánast ekkert á sjónvarp. Ekki einu sinni fréttir, allar fréttir eru löngu komnar fram yfir daginn, áður en þeim er sjónvarpað á kvöldin. Horfi frekar á Svamp Sveinsson eða Finnboga og Felix með syni mínum.

Besta bíómyndin (af hverju)? Hmm... Um daginn sá ég Gone Girl og fannst hún fín en svona einu sinni á ári horfi ég á Groundhog Day. Sú mynd er svo frábærlega tilvistarleg eitthvað, að njóta stundarinnar og fá til baka það sem þú leggur á þig fyrir lífið.

Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Gunnar Nelson, af því ég skil ekki hvernig hægt er að ganga inn í búrið sjálfviljugur og vita hvað er að fara að gerast.

Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? 
Ég hef algera yfirburði í að strauja.

Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?  Samlokur, án efa. Samlokukvöld í mínu eldhúsi slá öllum öðrum samlokum við (enda sagði ég samlokur fjórum sinnum í svarinu).

Hættulegasta helgarnammið? Wasabi hnetur eru stórvarasamar. Nuddaði einu sinni augun með sömu fingrum og mötuðu mig af hnetum. Ég grét eins og krakki.

Hvernig er eggið best? Egg eru bara alltaf góð en dóttir mín sýður oft egg án skurnar og setur á brauð með avókadói. Það kom skemmtilega á óvart.

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Væri til í að vera meira úti að leika og minna inni að vinna.

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? 
Sumir eyða miklum tíma í aðfinnslur, kvart og kvein en á meðan líður tíminn hjá og möguleikarnir með.

Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun?  
“Misstu ekki af andránni“ Jorge Luis Borges

Hver er elsta minningin sem þú átt? Þegar ég var 5 ára þá náðist fyrst sjónvarp í Svartárdal. Við systir mín kveiktum í fyrsta skipti á tækinu, þá var þáttur sem hét Fuglahræðan, hún hræddi okkur líka, eftir örfáar sekúndur slökktum við dauðskelkuð á tækinu og fórum út að leika.

Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? 
Tinni er mitt uppáhald, ég gat hlegið upphátt að óheppni og blóti Kolbeins kapteins.

Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera? Lincoln kemur fyrstur upp í hugann. Ímynd hans stendur enn fyrir jöfnuði milli fólks, ríkri réttlætiskennd og styrk til að fylgja eftir erfiðum ákvörðunum.

Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur?  Núna er ég að lesa Táningabók eftir Sigurð Pálsson og oftast er uppáhaldsbókin mín sú sem ég er að lesa. En Innsveitarkrónika er alltaf jafn yndislega fyndin og skemmtileg, kíki reglulega í hana og svo er Hundrað ára einsemd ótrúlega eftirminnileg, þótt hún sé ekki um neitt.

Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Olræt.

Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? 
Má ég lita útfyrir línurnar? Mér finnst nefnilega Íslendingar sem heild vera mikilvægir, því strit og fórnir íslenskra sjómanna, bænda, verkamanna og atvinnurekenda eru forsendur þess að við sem búum Ísland í dag höfum það gott.

Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Ég færi mjög víða um Ísland og á ólíkum tímum. Vildi gjarnan geta ferðast um Ísland á þjóðveldistímanum og aftur uppúr aldamótunum 1900.

Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Hugarflug sveimhugans

Framlenging:

 Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu...
Til Maui punktur

 Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? 
Geri ráð fyrir að sé hlýtt á eyjunni. Útvarp, hníf og risastóran kveikjara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir