182 án atvinnu
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
24.03.2009
kl. 08.40
Á Norðurlandi vestra og Siglufirði eru nú 182 án atvinnu og er það töluverð aukning frá síðustu mánaðarmótum. Um það bil 20% af atvinnuleysisskrá þiggja aðeins bætur að hluta og eru í hlutastörfum á móti bótum.
Á vef Vinnumálastofnunar má sjá lista yfir fjölmörg spennandi störf sem í boði eru á svæðinu.
Fleiri fréttir
-
Húsblessun á Löngumýri
Fyrsta sunnudag í þorra fór fram húsblessun á Löngumýri. Forsaga málsins er sú að haustið 2016 var hafist handa við byggingu á sólstofu í skansi austanvert við gistiálmuna og milligang sem þar er. Fyrstu árin gerðist lítið umfram sökkla og plötusteypur, en veturinn 2023 var húsið gert fokhelt og síðan þá hefur verið unnið með hléum í því þar til nú og segja má að það sé fullklárað.Meira -
Norðanstormur á Akureyri: Hugmyndir, fjármagn og framtíðarsýn mætast
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 06.02.2026 kl. 15.11 gunnhildur@feykir.isNýsköpunarráðstefnan Norðanstormur, sem haldin er af SSNE og SSNV, fer fram í Hofi á Akureyri 26. febrúar kl. 9:30–12:00, þar munu frumkvöðlar, fjárfestar og fyrirtæki hittast til að fræðast um helstu leiðir til fjármögnunar og vaxtar. Fyrst fara sjóðsstjórar og fjárfestar yfir fjármögnunarmöguleika en á eftir þeim stíga frumkvöðlar á svið og segja frá eigin vegferð – áskorunum, tækifærum og því sem kom verkefnum þeirra á legg, þetta kemur fram á vef SSNV.Meira -
Nýtt vettvangsnámskeið fyrir nemendur í fiskeldisnámi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 06.02.2026 kl. 08.31 oli@feykir.isÞað segir frá því á heimasíðu Háskólans á Hólum að sem hluti af fiskeldisnámi (Aquaculture Diploma) fór fram vettvangsnámskeið dagana 28.–30. janúar 2026 á Suðvesturlandi, á svæðinu milli Reykjavíkur og Grindavíkur. Námskeiðið veitti nemendum víðtæka innsýn í ólíka þætti íslensks fiskeldisiðnaðar og tengdi saman fræði og framkvæmd.Meira -
Gömlupeysudagur hjá starfsfólki Safnahúss Skagfirðinga
Starfsfólk Safnahúss Skagfirðinga á Sauðárkróki nýtir ýmis tækifæri til að gera sér dagamun í vinnunni. Í dag var efnt til Gömlupeysudags, þar sem starfsfólk dró fram úr skúmaskotum gamlar peysur.Meira -
Byggðagleraugu SSNV 2026
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 05.02.2026 kl. 14.29 gunnhildur@feykir.isStjórn SSNV veitir ár hvert viðurkenninguna Byggðagleraugun til ráðuneytis, stofnunar eða fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans. Er viðurkenningunni ætlað að hvetja forsvarsmenn stofnana og fyrirtækja til að horfa með “byggðagleraugunum” á verkefni sinna eininga og nýta þau tækifæri sem gefast til flutnings starfa/verkefna á landsbyggðina í samræmi við áherslur byggðaáætlunar.Meira
