Sauðfjárbændur samþykkja stefnu samtakanna til 2027
Bændur ætla að kolefnisjafna allt íslenskt lambakjöt
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda, sem haldinn var í Bændahöllinni við Hagatorg 30. og 31. mars 2017, hefur samþykkt stefnu samtakanna til ársins 2027. Hún er í tíu liðum og í henni felst meðal annars að kolefnisjafna skuli alla greinina eins fljótt og auðið er. Einnig er stefnt að því að allar afurðir skuli vera rekjanlegar, samtökin sjálf skuli setja sér umhverfisstjórnunarstefnu og svo mætti áfram telja. Með þessu eru festar í sessi þær áherslur sem hafa rutt sér til rúms í starfsemi samtakanna og íslenskri sauðfjárrækt á undanförnum misserum og árum. Tilgangurinn er að efla íslenska sauðfjárrækt í sátt við samfélag og náttúru þar sem sérstaða, sjálfbærni, fjölbreytni og verðmætasköpun eru höfð að leiðarljósi.
Stefnuna í heild sinni má nálgast hér.
Sauðfjárbændur samþykkja sérstaka neytendastefnu
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda samþykkti líka neytendastefnu á fundinum. Íslenskir sauðfjárbændur eru stoltir af því að framleiða hágæða afurðir fyrir opnum tjöldum með umhverfisvænum og náttúrulegum hætti. Þeir telja mikilvægt að neytendur fái réttar og góðar upplýsingar hvar sem þeir kaupa matvörur, hvort sem er í verslunum, á veitingastöðum eða í mötuneytum. Þetta er grunnurinn að heiðarlegri samkeppni og raunverulegu valfrelsi neytenda. Þetta eru sameiginlegir hagsmunir bænda og neytenda. Íslenskir sauðfjárbændur vilja að neytendur viti sem mest um þær afurðir sem bændur leggja alúð við að framleiða í sátt við náttúru og samfélag. Þess vegna setja þeir sér nú neytendastefnu í fyrsta sinn undir yfirskriftinni Okkar afurð – okkar mál. Þessi stefna verður lögð til grundvallar í allri samvinnu bænda við þá sem vinna og selja afurðirnar, almenning, samtök neytenda og stjórnvöld.
Stefnuna má lesa í heild sinni hér.
/Fréttatilkynning
.