Báru mann niður af Spákonufellsborg

Björgunarsveitir í Húnavatnssýslu og Skagafirði fengu beiðni um aðstoð vegna manns sem var á gangi við Spákonufellsborg í gær en hann kvartaði yfir brjóstverk og komst ekki leiðar sinnar en hann var þá staddur í u.þ.b. 500 m.y.s.. Björgunarsveitir á svæði 9 og 10 mættu á svæðið ásamt sjúkraflutningamönnum og lækni.
Á fésbókarsíðu Björgunarfélagsins Blöndu á Blönduósi segir að þurft hafi að bera manninn í börum niður bratta hlíðina þó nokkra vegalengd að björgunarsveitabíl sem flutti hann niður að bænum Brandaskarði þar sem sjúkrabíllinn beið. Óskað var eftir aðstoð frá þyrlu landhelgisgæslunnar sem mætti á svæðið og flutti sjúklinginn á sjúkrahús.