Björn Jóhann og Anna Lilja Þórisdóttir ráðin aðstoðarfréttastjórar
Skagfirðingurinn Björn Jóhann Björnsson og Anna Lilja Þórisdóttir hafa verið ráðin aðstoðarfréttastjórar á ritstjórn Morgunblaðsins. Frá þessu var sagt á Mbl.is í dag. Björn Jóhann kannast flestir við enda skrásetjari Skagfirskra skemmtisagna sem allir Norðlendingar ættu að hafa innan seilingar.
Á Mbl.is segir að Björn Jóhann hafi starfað á Morgunblaðinu og mbl.is sem blaðamaður og vaktstjóri frá árinu 2000, þar af fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu á árunum 2005-2007. Þar áður var hann blaðamaður og fréttastjóri á Degi og blaðamaður á DV. Hóf hann störf í blaðamennsku árið 1987. Björn Jóhann stundaði nám í íslensku og fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands.
Björn sagði í samtali við Feyki að hann muni áfram skrifa efni í blaðið eftir því sem færi gæfist. „Það er gott að fá tækifæri til þess, blaðamennskan er mjög heillandi og skemmtileg, enda hefur hún verið mitt ævistarf. Þetta er orðinn dágóður tími því í sumar verða 30 ár liðin síðan maður hóf launað starf sem blaðamaður á Feyki, tvítugur að aldri. Þar hófst þetta allt saman,“ segir Björn en nánar verður rætt við hann í næsta Feykisblaði.