Breyta þarf aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar

Mynd úr skýrslu samstarfsnefndar um sorpförgun á Norðurlandi vestra frá 2005.
Mynd úr skýrslu samstarfsnefndar um sorpförgun á Norðurlandi vestra frá 2005.

Hefja þarf vinnu við breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 m.a. að fella út urðunarsvæði og vinna breytingar vegna legu Sauðárkrókslínu frá Varmahlíð til Sauðárkróks. Einnig þarf að vinna að framlengingu á frestaðri landnotkun virkjunarkosta og taka inn í skipulagsvinnuna ákvörðun um legu byggðarlínunnar um Skagafjörð.

Þetta kom fram á fundi skipulags- og byggingarnefndar fyrir helgi en í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar liggur fyrir verk- og matslýsing vegna breytinga á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021, dagsett í mars 2017 unnin af VSÓ ráðgjöf fyrir sveitarfélagið.

Alls verður gerð tillaga að sex breytingum sem eru:

A) Val á legu Blöndulínu 3
Tekin verður ákvörðun um legu Blöndulínu 3, 220 kV háspennulínu sem liggur frá Blöndustöð til Akureyrar. Ákvörðun um legu hennar innan sveitarfélagsins var frestað í Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021.

B) Sauðárkrókslína 2
Gerð verður tillaga að legu Sauðárkrókslínu 2, sem er 66 kV jarðstrengur sem muni liggja á milli Varmahlíðar og Sauðárkróks.

C) Virkjanakostir í Skagafirði
Tekin verður ákvörðun um landnotkun vegna Villinganesvirkjunar og Skatastaðavirkjunar í aðalskipulag. Skipulagi virkjananna var frestað í Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 og gildir sú ákvörðun í fjögur ár.

D) Urðunarsvæði í Viðvíkursveit fellt út
Ætlunin er að fella urðunarsvæði í Viðvíkursveit út í skipulagi og skilgreina það sem opið svæði til sérstakra nota.

E) Nýtt tengivirki og rafstrengur á Sauðárkróki
Gerð verður tillaga að staðsetningu fyrir nýtt tengivirki innan athafnasvæðis A-3.3 og legu rafstrengs frá tengivirki við Kvistahlíð að nýju tengivirki. Einnig verður landnotkun á lóð tengivirkisins við Kvistahlíð breytt í opið svæði.

F) Ný efnistökusvæði
Skoðaðir verða 12 námukostir sem koma til greina að bæta við í aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar til að bregðast við efnisþörf sem kemur til vegna styrkingar raforkukerfisins í sveitarfélaginu.

Valdimar Ó. Sigmarsson lét bóka að Vinstri grænir og óháðir vilji að virkjanakostir, Villinganes og Skatastaðir verði felldir út úr Aðalskipulagi Skagafjarðar.

Fleiri fréttir