Búningar, söngur og nammi - Myndband
feykir.is
Skagafjörður
04.03.2017
kl. 08.20
Sól og blíða var á Króknum þegar furðuverur gengu um bæinn og sungu fyrir nammi á öskudaginn. Eftir morgunröltið var kötturinn, eða kannski kötturinn í sekknum, sleginn úr tunnunni, og yngstu krakkarnir slógu úr kassanum, í íþróttahúsinu. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá margvíslega söngvara sem komu í afgreiðslu Nýprents og létu ljós sitt skína.
