Deiliskipulagstillaga fyrir skíðasvæðið í Tindastóli
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum nýverið að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir skíðasvæðið í Tindastóli. Í tillögunni felst gerð deiliskipulags fyrir svæðið eins og það er afmarkað í aðalskipulagi og er markmiðið að fá fram heildstætt skipulag fyrir svæðið og nánasta umhverfi þess.
Tillagan gerir meðal annars ráð fyrir byggingu skíðaskála, skíðalyftu og möguleikum á lyftu og skíðabraut í hlíðum Ytridals að vestanverðu.
Hægt er að nálgast tillöguna hér á heimasíðu Skagafjarðar og hún liggur einnig frammi í ráðhúsi sveitarfélagsins frá og með miðvikudeginum 14. júní til og með 26. júlí 2017. Athugasemdir við tillöguna skulu berast skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið jobygg@skagafjordur.is í síðasta lagi þann 26. júlí.