Ólögleg skotveiði og hraðakstur
Um helgina lagði Lögreglan á Norðurlandi vestra hald á skotvopn manna sem skotið höfðu friðaða fugla ásamt því að gera feng þeirra upptækan en mál mannanna verður tekið fyrir hjá embættinu eftir helgina. Bendir löreglan á það á Facebooksíðu sinni að menn ættu að kynna sér upplýsingar um veiðitímabil og friðunartíma fugla sem nálgast má á vef Umhverfisstofnunar http://ust.is/einstaklingar/veidi/veiditimabil/. Þær tegundir fugla sem veiða má allt árið eru svartbakur, sílamávur, silfurmávur og hrafn .
Ennfremur kemur fram á Facebooksíðu lögreglunnar að ungur ökumaður mældist á 155 km hraða á föstudag. Verður hann sviptur ökuréttindum, þarf að greiða 130 þúsund krónur í sekt og fær þrjá punkta í ökuferilsskrá sína.