Er styrkur í þér?

Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Norðurlands vestra hefur tilkynnt um að umsóknar- og úthlutunarferli vegna styrkveitinga úr sjóðnum sé að hefjast og er kastljósinu beint að atvinnuþróun og nýsköpun.

Í september 2016 var undirritaður samningur milli SSNV og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins um Nýsköpunarsjóð Norðurlands vestra. Samningurinn er til þriggja ára og er framlag ríkisins til sjóðsins 10 milljónir króna á ári. Sérstaklega er horft til mikilvægis þess að byggja upp nýjar þekkingargreinar sem byggja á styrkleikum svæðisins sem hæfa ungu vel menntuðu fólki.

Umsóknareyðublöð, verklags- og úthlutunarreglur og önnur gögn fyrir sjóðinn er að finna á heimasíðu SSNV undir Atvinnu- og nýsköpunarsjóður. 

Fleiri fréttir