Er styrkur í þér? – Seinni úthlutun 2017
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra og Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Norðurlands vestra vilja minna á að nú er seinna úthlutunarferlið vegna styrkveitinga úr sjóðunum fyrir árið 2017 í fullum gangi
Vakin er athygli á að nú verður aðeins úthlutað til þess hluta Uppbyggingarsjóðs sem snýr að atvinnuþróun og nýsköpun.
Umsóknareyðublöð og önnur gögn fyrir báða sjóðina er að finna á heimasíðu SSNV; www.ssnv.is.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl nk.