Ertu á leið á Unglingalandsmót? – Hér eru tjaldstæðin
Mótsstjórn Unglingalandsmóts UMFÍ opnaði í Egilsstaðaskóla á Egilsstöðum klukkan 18 í gær (miðvikudag) og geta þar þátttakendur á mótinu náð í mótsgögn og annað nauðsynlegt fylgiefni, svo sem mótadagskrá og Skinfaxa, tímarit UMFÍ. Á meðal fylgigagna eru armbönd sem þátttakendur þurfa að setja á sig til að geta tekið þátt í keppnum á Unglingalandsmótinu um verslunarmannahelgina.
Margrét Sigríður Árnadóttir, verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ á Egilsstöðum, segir fyrstu klukkustundirnar hafa gengið glimrandi vel. „Þetta er búið að vera alveg ótrúlega skemmtilegt og gaman að sjá hvað andinn er góður í ungmennafélagshreyfingunni.“
Mótsstjórn er opin á þessum tíma:
Fimmtudag: 15:00-23:00
Föstudag: 09:00-18:00
Laugardag: 09:00-18.00
Sunnudag: 09.00-17:00
Á meðfylgjandi korti má sjá hvar mótaskráningin er staðsett.
Högum okkur vel
UMFÍ minnir gesti Unglingalandsmóts UMFÍ á tjaldbúðareglur á tjaldsvæði sambandsaðila. Reglurnar er að finna í mótadagskránni sem gestir fá þegar þeir ná í gögnin fyrir mótið áður en þeir halda að tjaldsvæði. Ýmsar gagnlegar upplýsingar eru í skránni, svo sem um hávaða á tjaldstæði, hundahald og fleira. Við skulum líka öll gæta okkar í umferðinni og aka varlega um Egilsstaði.