Ester Rut Unnsteinsdóttir, spendýravistfræðingur, hélt fræðsluerindi fyrir refaskyttur Skagafjarðar

Skytturnar Steinþór Tryggvason, Kári Gunnarsson, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi, Stefán Sigurðsson og Birgir Hauksson ásamt Starra Heiðmarssyni, forstöðumanni Náttúrustofu Norðurlands vestra og Ester Rut Unnsteinsdóttur spendýravistfræðingi hjá NÍ. Myndir PF.
Skytturnar Steinþór Tryggvason, Kári Gunnarsson, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi, Stefán Sigurðsson og Birgir Hauksson ásamt Starra Heiðmarssyni, forstöðumanni Náttúrustofu Norðurlands vestra og Ester Rut Unnsteinsdóttur spendýravistfræðingi hjá NÍ. Myndir PF.

Refaskyttur sveitarfélagsins Skagafjarðar fengu góða heimsókn á árlegan fund veiðimanna og landbúnaðarnefndar í Ljósheimum í gær. Ester Rut Unnsteinsdóttir, spendýravistfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, hélt fræðsluerindi um íslenska melrakkann og fór yfir helstu niðurstöður refarannsókna, sem gerðar hafa verið á Íslandi og erlendis á síðustu áratugum. Erindið var hið fróðlegasta og fyrirspurnir og umræður í framhaldi af því.

Að loknu erindinu var veiðimönnum boðið í húsnæði Náttúrustofu Norðurlands vestra, til að vera viðstaddir þegar Ester Rut krufði nokkra refi, sem veiddir voru í Skagafirði síðasta vetur. Starri Heiðmarsson, starfsmaður Náttúrustofu Norðurlands vestra, mun í sumar aðstoða veiðimenn, sem taka þátt í refarannsóknum og skila inn til krufningar refum veiddum í Skagafirði, en engar slíkar rannsóknir hafa verið gerðar hér síðustu ár. Krufning dýra veitir ýmsar upplýsingar um refina, aldur, frjósemi, holdafar og fl.

/Kári Gunnarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir