Finni á Steini fagnaði 90 ára afmæli sínu með því að færa Ljósinu gjöf

Erna Magnúsdóttir veitti styrknum viðtöku. Að sjálfsögðu var gætt að metrunum tveimur. Mynd: Ljosid.is
Erna Magnúsdóttir veitti styrknum viðtöku. Að sjálfsögðu var gætt að metrunum tveimur. Mynd: Ljosid.is

Í gær greindi Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess, frá góðri heimsókn norðan úr Skagafirði þegar Sigurfinnur Jónsson, Finni á Steini, á Sauðárkróki leit við ásamt fjölskyldu sinni, og færði því rúmar 350 þúsund krónur að gjöf.

Á heimasíðu Ljóssins kemur fram að í lok árs 2016 hafi Elsa, dóttir Sigurfinns og Maríu Jóhannsdóttur konu hans, greinst með krabbamein og hafi síðan þá sótt endurhæfingu í Ljósið. „Í þakkarskyni fyrir alla þá þjónustu sem Elsa hefur sótt á Langholtsveginn valdi Finni, eins og hann er kallaður af sínu fólki, að afþakka gjafir í tilefni 90 ára afmæli síns í mars en bauð þeim sem vildu að styðja við starf Ljóssins. Líkt og hjá mörgum öðrum þurfti að fresta veisluhöldum en í sumar gafst svo loks tækifæri til að fagna þessu merkisafmæli,“ segir á ljosid.is.

Ákveðið hefur verið að setja upphæðina í uppbyggingu palls við nýtt húsnæði Ljóssins þar sem ætlunin er að koma upp góðu svæði fyrir ljósbera félagsskaparins.

Fleiri fréttir