Fjórar kindur sóttar í Vesturfjöll
Í gær var farinn leiðangur í Vesturfjöllin í Skagafirði til að sækja kindur sem vitað var að héldu til við Stakkfellið. Sex manna hópur, á þremur fjórhjólum og tveimur sexhjólum, lagði af stað frá Gautsdal og óku norður Laxárdal og í gegnum Litla-Vatnsskarð. Þaðan var haldið út Víðidal og til móts við Gvendarstaði fundust fjórar kindur, vestan í Stakkfellinu. Þær voru handsamaðar, fluttar til byggða og komið til eigenda sinna.
Að sögn Ara Jóhanns Sigurðssonar, eins leiðangursmanna, gekk ferðin vel miðað við aðstæður. Hann segir að nokkrar festur hafi verið í ferðinni fyrir farartækin en allt bjargaðist enda vanir menn á ferð og öllu vanir. Einn leiðangursmann var vísnaþáttasmiður Feykis, Guðmundur Valtýsson frá Eiríksstöðum og hans tryggi smalahundur. Að sögn Ara hefði þetta getað orðið erfitt ef þeirra hefði ekki notið við. Meðfylgjandi myndir tók Ari úr leiðangrinum.
Tengd frétt: Kindur sóttar á fjöll í dag