Frísklegt sjávarbað á Þrettándanum
Á föstudaginn eru allir hvattir til að fá sér frísklegt sjávarbað á Þrettándanum. Verður komið saman norðan við nýja hafnargarðinn í smábátahöfninni á Sauðárkróki klukkan 12 á hádegi föstudaginn 6. janúar.
Benedikt S. Lafleur og félagar munu leiðbeina sjóbaðsgestum. Að loknu sjóbaði er svo tilvalið að ylja sér í sundlaug Sauðárkróks. Allir eru velkomnir að taka þátt og eru upplýsingar veittar í síma 659 3313.