Fyrsta Fimmtudagsmót UMSS í dag

Fyrsta Fimmtudagsmót UMSS sumarsins verður haldið í dag, 14. júní og hefst mótið kl. 17 og lýkur um kl. 21. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls hafa Fimmtudagsmót UMSS  verið stór þáttur í frjálsíþróttalífinu í Skagafirði á síðustu árum.

Keppt verður í hástökki, langstökki, stangarstökki og kringlukasti. „Mögulegt er að bæta við greinum, ef áhugi er til staðar,“ segir á heimasíðu Tindastóls.

Skráning á umss@simnet.is, eða á keppnisstað.

Jafnframt er óskað eftir starfsmönnum. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Elmar á skrifstofu UMSS: umss@simnet.is

 

Fleiri fréttir