Gáfu þrjú hjúkrunarrúm

Örn Ragnarsson, Engilráð M. Sigurðardóttir, Elín H. Sæmundardóttur og Herdís Klausen við afhendingu hjúkrunarrúmanna góðu. Mynd: PF.
Örn Ragnarsson, Engilráð M. Sigurðardóttir, Elín H. Sæmundardóttur og Herdís Klausen við afhendingu hjúkrunarrúmanna góðu. Mynd: PF.

Í dag afhenti Minningarsjóður frú Sigurlaugar Gunnarsdóttur, með formlegum hætti, Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki, þrjú hjúkrunarrúm ásamt fylgihlutum. Rúmin eru þegar komin í notkun og segir Herdís Klausen yfirhjúkrunarfræðingur, þau koma stofnuninni afar vel þar sem þau leysa af hólmi eldri rúm sem komin voru á tíma. Það voru þau Örn Ragnarsson, framkvæmdastjóri lækninga, Engilráð M. Sigurðardóttir og Elín H. Sæmundardóttur sem afhentu gjafabréfið en þau skipa jafnframt stjórn sjóðsins.

Minningarsjóður frú Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási í Hegranesi var stofnaður 7. júlí 1969 í tilefni af því, að þá voru liðin 100 ár frá stofnun fyrsta kvenfélags í Skagafirði, en það var gert að Ási í Hegranesi og að frumkvæði Sigurlaugar Gunnarsdóttur húsfreyju þar.

Hjúkrunarrúmin sem HSN fékk afhent í dag eru eins og þetta rúm hér.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki, sem áður hét Sjúkrahús Skagfirðinga, til kaupa á lækningatækjum eða öðru því sem stjórn sjóðsins telur mesta nauðsyn á, á hverjum tíma. Sjóðurinn er fjármagnaður með sölu minningarkorta, minningargjöfum og öðrum gjöfum.

Fleiri fréttir