Garðfuglahelgi Fuglaverndar um helgina

Silkitoppur og skógarþröstur á grein. Ljósmyndari: Örn Óskarsson.
Silkitoppur og skógarþröstur á grein. Ljósmyndari: Örn Óskarsson.

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 27. - 30. jan. nk. en þá munu áhugasamir þátttakendur fylgjast með garði í einn klukkutíma. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað við mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir. Í tilkynningu frá Fuglavernd segir að talningin miði við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.

„Ef fuglunum er ekki gefið reglulega þá er gott að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Epli eru vinsæl hjá mörgum fuglum og auðvelt að koma þeim fyrir með því að skera þau í tvennt eða stinga kjarnann úr þeim og festa á trjágrein,“ segir í tilkynningunni.

Nánari upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra er hægt að finna á vef Fuglaverndar og í Garðfuglabæklingi félagsins sem má fá á skrifstofu Fuglaverndar.

Upplýsingar um garðfuglahelgi er að finna á vef Fuglaverndar

 

Fleiri fréttir