Góða helgi allir - myndband:)
Ég bara varð að deila þessu með ykkur svona rétt áður en helgarfríið byrjar
En það þarf ekki mikið til að koma mér til að hlægja en ég grenjaði úr hlátri þegar ég sá þetta
Fleiri fréttir
-
Pere og Fede yfirgefa lið Kormáks Hvatar
feykir.is Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 26.10.2026 kl. 15.32 oli@feykir.isFótboltavertíðinni á Íslandi lauk nú um liðna helgi en þá var síðasta umferðin spiluð í Bestu deild karla. Þar gerðust þau undur að lið KA féll niður í Lengjudeildina en vinir þeirra í Þór héldu sæti sínu. Það er sjaldan ró og friður í fótboltanum og vertíðinni ekki fyrr lokið en farið er að huga að næsta tímabili. Á Aðdáendasíðu Kormáks Hvatar má sjá að Húnvetningar verða að horfa á eftir þeim Pere Belmonte og Fede Russo yfir í lið Hauka í Hafnarfirði sem tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni nú í haust.Meira -
Vilja að slökkvibifreiðar verði undanþegnar kílómetragjaldi
Sveitarstjórn Skagafjarðar óskar eftir því að slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi eins og björgunarbifreiðar. Í frétt á mbl.is segir að þetta komi fram í umsögn sveitarfélagsins um drög fjármála- og efnahagsráðuneytisins að breytingum á lögum um kílómetragjald.Meira -
Laxveiði jókst um 35% á landinu í sumar – Húnvetnsku árnar koma vel út
feykir.is Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 26.10.2026 kl. 12.05 hinrik@feykir.isHeildarfjöldi stangveiddra laxa í sumar var um 46.300 fiskar, sem er um 35 % meiri veiði en sumarið 2025 og um 12% yfir árlegri meðalveiði áranna 1974-2025. Laxveiðin í sumar var um 12.100 löxum meiri en í fyrra. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Hafrannsóknarstofnunar. Aukning í laxveiði er í öllum landshlutum, þar á meðal í sjö helstu laxveiðiám Húnavatnssýslna. Þar jókst laxveiðin um rúmlega 50% eða um 1.385 laxa.Meira -
Spennandi tímar framundan hjá Valdísi
Það hefur mögulega ekki farið framhjá þeim sem sitja langdvölum með símann í höndunum og skrolla sér til skemmtunar í gegnum Spotify og Instagram að VALDÍS er að gefa út ný lög. Valdís er 26 ára gömul söngkona frá Sauðárkróki, dóttir Önnu Sigríðar Stefánsdóttur og Valbjörns Geirmundssonar, og hefur verið á kafi í tónlist frá unga aldri. Fyrir utan tónlistina þá á hún og rekur Snyrtistofu Valdísar sem er staðsett í Villunni á Hólaveginum á Króknum.Meira -
Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… | Sigríður Framdalz Ólafsdóttir skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 25.10.2026 kl. 10.52 oli@feykir.is… varð mér á orði í gær eftir að hafa fyllt bílinn minn af eldsneyti. Eldsneyti sem er á innan við ári komið upp í sama verð og það var á þegar eldsneytisgjöld voru inni í verðinu. Núna borga ég sem sagt sama verð og áður, þökk sé meðal annars hækkun kolefnisgjalds, og svo greiði ég áætlað kílómetragjald einu sinni í mánuði til viðbótar.Meira
