Hard Wok Cafe gefur yngri iðkendum gjafabréf
Á heimasíðu Tindastóls segir að Hard Wok Cafe á Sauðárkróki sé öflugur styrktaraðili körfuknattleiksdeildar Tindastóls en á dögunum fengu iðkendur yngri flokka gjafabréf frá fyrirtækinu.
Gjafabréfið hefur eflaust glatt marga því það bauð upp á hamborgara, franskar og ís. Á meðfylgjandi mynd má sjá Dag Þór Baldvinsson, formann unglingaráðs, taka við gjafabréfunum úr höndum Árna Björns Björnssonsr, eiganda Hard Wok.