Iðan fræðslusetur heimsótti FNV
feykir.is
Skagafjörður
27.09.2012
kl. 08.35
Iðan fræðslusetur heimsótti málmiðnadeild FNV á dögunum með skemmtileg tól og tæki. Á heimasíðu FNV segir að nemendur hafi fengið að skoða og prófa ýmis tæki, t.d. suðuhermi, plasmasuðuvél og migmag suðuvél með svokallaðan „boomerang“.
Nemendur skemmtu sér vel eins og sjá má á í myndaalbúmi á heimasíðu skólans.
