Ísmót á Svínavatni á sunnudaginn

Frá ísmóti. Mynd:is-landsmot.is/
Frá ísmóti. Mynd:is-landsmot.is/
Þar sem ís er aftur kominn á Svínavatn hefur verið ákveðið, með skömmum fyrirvara, að efna til ísmóts á sunnudaginn, 5. mars klukkan 13:00.

Keppt verður í tölti í opnum flokki, flokki áhugamanna og 16 ára og yngri svo sem verið hefur. Riðin verður ein ferð á hægu tölti, tvær ferðir hraðabreytingar og ein ferð á yfirferðartölti.

Ef möguleiki er á verður bæjarkeppni að tölti loknu.
Skráning berist fyrir miðnætti laugardaginn 4. mars á netfangið valur@gamar.is. Skráningargjöld eru 1.000 kr.
Allar kvartanir, skammir og óánægja berist í pósti að Brekkubyggð 4.
Nefndin.

Fleiri fréttir