Íþróttaskóli fyrir þau yngstu
Sigmundur Birgir Skúlason, eða Simmi, eins og Króksarar þekkja hann, mun næsta laugardag fara af stað með íþróttaskóla fyrir 4 - 5 ára börn í Síkinu á Sauðárkróki.
Íþróttaskólinn byrjar klukkan 10.10 að morgninum og verður kennt einu sinni í viku. Markmiðið er að krakkarnir fái að prófa sig áfram í hinum ýmsu íþróttagreinum.
Skráning fer fram hjá þjálfaranum þegar krakkarnir mæta í fyrsta tímann.