Kirkjugarðurinn fékk upplyftingu
Í síðustu viku kláruðu þessir dugmiklu málarar frá Dodda málara að mála girðinguna í kringum Sauðárkrókskirkjugarð.
Sauðárkrókskirkja, safnaðarheimilið og kirkjugarðurinn eru því í toppstandi um þessar mundir en stutt er síðan að kirkjan og safnaðarheimilið fengu upplyftingu.
Fleiri fréttir
-
Silfrastaðakirkja hugar að heimferð
Eins og margir vita hefur Silfrastaðakirkja dvalið á Sauðárkróki síðan haustið 2021 og er orðin eitt af kennileitum bæjarins þar sem hún stendur norðan við trésmiðjuna Ýr. En það góða fyrirtæki hefur haft veg og vanda af viðgerðum á kirkjunni. Núna hillir undir að þetta guðshús geti lagt af stað heim til sín aftur.Meira -
Háskólalest Háskóla Íslands mætir í Skagafjörðinn – fjör og fræði fyrir alla
Dagana 16.–18. apríl 2026 heimsækir Háskólalestin Sauðárkrók og býður nemendum, kennurum og íbúum Skagafjarðar upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og kynnir undur vísindanna á lifandi og skemmtilegan hátt. Háskólalestin ferðast árlega um landið með það að markmiði að gera vísindi og nám aðgengileg og spennandi fyrir fólk á öllum aldri, um leið og tengsl Háskóla Íslands við landsbyggðina eru efld.Meira -
Að fara vel með sameiginlega fjármuni? | Hjalti Þórðarson skrifar
Nú styttist í sveitastjórnarkosningar mörgum til mikillar gleði en öðrum ekki. Tilvonandi sveitastjórnarfulltrúar fara sjálfsagt að hugsa sér til meiri hreyfings með kynningu á stefnu og málefnum. Ekki þarf að efast um að loforðaflaumurinn verður mikill eins og endranær.Meira -
Stórir leikmenn og stór andartök
Körfuboltaguðirnir voru grimmir við Stólastúlkur í gærkvöldi þegar þeir aðstoðuðu lið Njarðvíkur við að stela sigrinum út greipum stúlknanna hans Israel Martín sem áttu sannarlega ekki skilið að tapa. Frammistaða liðsins var nefnilega frábær þrátt fyrir að okkar besta Marta hafi sennilega hitt á sinn versta leik í vetur. Fáránleg flautukarfa Brittany Dinkins á lokasekúndubrotinu batt enda á ævintýri Stólastúlkna í vetur. Lokatölur 88-87.Meira -
Kórsöngur í Blönduóskirkju í kvöld
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps efnir til tónleika í Blönduóskirkju fimmtudaginn 9. apríl nk. kl. 20:00. Gestakór kvöldsins er Karlakórinn Lóuþrælar frá Hvammstanga. Á tónleikunum munu kórarnir flytja fjölbreytt kórverk, bæði hvor í sínu lagi og í sameiginlegum flutningi.Meira
