Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi
Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi boðar til aukins kjördæmisþings sunnudaginn 1. október kl. 13 þar sem gengið verður frá framboðslistanum fyrir alþingiskosningar 2017. Fundað verður á Hótel Bjarkalundi í Reykhólasveit.
Á kjördæmisþingi verður haldinn kjörfundur þar sem kosið verður um fjögur efstu sæti framboðslistans, sbr. samþykkt á kjördæmisþingi á laugardaginn. Jafnframt verður lögð fram tillaga uppstillingarnefndar um þau sæti á framboðslistanum sem ekki er kosið um.
Þeir sem hefðu áhuga á að taka sæti á framboðslistanum eru beðnir um að hafa samband við Björn Guðmundsson, formann uppstillingarnefndar, í netfangið bg56@aknet.is fyrir miðvikudaginn 27. september kl. 18.
Stjórn kjördæmisráðs hvetur alla félagsmenn til að mæta á kjördæmisþingið og taka þátt í kosningum á framboðslista og umræðum vegna komandi alþingiskosninga.
Fyrir hönd stjórnar kjördæmisráðs,
Ólafur Ingi Guðmundsson, formaður
/FRÉTTATILKYNNING