#kvennastarf
Tækniskólinn og Samtök iðnaðarins hafa, í samstarfi við alla iðn- og verkmenntaskóla á landinu, hrundið af stað átaki sem ber nafnið #kvennastarf. Algengt er talað sé um „hefðbundin kvennastörf“. Með #kvennastarf er ætlunin að brjóta niður úreltar hugmyndir og benda ungu kynslóðinni á að fyrir bæði kynin eru allar leiðir færar í námi og starfi. Átakið #kvennastarf vísar til mýtu sem flestir landsmenn kannast við, mýtunnar um að starfsgreinar geti flokkast í kvennastörf og karlastörf.
Velt er upp spurningunni; hvaða störf eru kvennastörf? Svarið mun vera það að ekkert starf sé ekki kvennastarf. Í herferðinni er sagt að hefðbundin verkaskipting kynjanna sé orðin úrelt og á ekki lengur við í nútímasamfélagi. Konur eiga að geta starfað við það sem þeim sýnist og það sama gildir um karlmenn.
Átakinu er ætlað að vera stelpum og ungu fólki hvatning til að skoða alla möguleika í vali á námi og framtíðarstarfi. Ætlunin er að sýna fram á að kynjahallinn sem er í iðn- og verkgreinum er óþarfur. Ef ungt fólk af báðum kynjum sér tækifæri í starfsmenntun, verður auðveldara að fjölga nemendum í þessum greinum og fleira fagmenntað fólk verður til í íslensku atvinnulífi.
Allir með – vitundarvakning
Allir, bæði fólk í verk- og iðngreinum og líka fólk úr öðrum starfsstéttum, eru hvattir til að taka þátt í átakinu og virkja hashtaggið #kvennastarf með því að setja myndir úr námi og starfi eða öðru sem tengist átakinu, inn á samfélagsmiðla á borð við Twitter, Instagram og Facebook. Ekkert starf er ekki kvennastarf. #kvennastarf hvetur yngri kynslóðir til þess að láta ekki samfélagsleg kynhlutverk aftra sér. Allir eiga að geta orðið það sem þeir vilja.
Sjá nánar á heimasíðunni Kvennastarf.is