Lagfæra á reiðgötur í gegnum Reykjaskarð
Arnþór Gunnarsson og Elvar Einarsson hafa fyrir hönd Fjallskilanefndar úthluta Seyluhrepps óskað eftir leyfi til þess að lagfæra reiðgötur í gegnum Reykjaskarð og út á Valbrandsdal.
Fyrirhugað er að nota jarðýtu við verkið og verður leitast við að valda eins litlu jarðraski og kostur er.Skipulags- og byggingarnefnd Skagafjarðar hefur samþykkt erindi þeirra að fengnu skriflegu samþykki allra hlutaðeigandi landeigenda.