Léttfeti með fræðslufund
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
08.05.2009
kl. 08.39
Í kvöld ætla Léttfetamenn að halda skemmti og fræðslufund í Tjarnabæ og kynna hvað verður í boði hjá hinum ýmsu nefndum á vegum þess.
Farið verður yfir félagsstarfið framundan, hvert ferðanefndin ætlar í sumar, hvenær eru mót og hvaða námskeið eru fyrirhuguð svo eitthvað sé nefnt.
Fundurinn byrjar kl. 20.30
Fleiri fréttir
-
Heiður að taka við rekstri Hlíðarkaups
Það er nú sennilega á flestra vitorði, eins og á við um mörg leyndarmálin, að það eru komnir nýir eigendur að Hlíðarkaup. Þessi ástsæla verslun í Hlíðarhverfinu á Króknum hefur verið rekin af Ásgeiri Einarssyni og fjölskyldu frá upphafi en búðin var fyrst opnuð 1991. Orðsporið hefur verið framúrskarandi og var Ásgeir til að mynda kjörinn Maður ársins á Norðurlandi vestra á síðasta ári. Nýir eigendur Hlíðarkaups eru Óli Björn Pétursson, Hekla Eir Bergsdóttir, Pétur Ingi Björnsson og Regína Jóna Gunnarsdóttir.Meira -
Í tilefni af 100 ára afmæli Glaumbæjarkirkju | Sigurður Haraldsson á Grófargili skrifar
Mín fyrstu kynni af Glaumbæjarkirkju hófust þegar ég var 4 ára - eða árið 1940. Þá fór fram jarðarför Sigurðar Jónssonar í Brautarholti sem ég heiti eftir. Sigurður var oddviti Seyluhrepps í 25 ár og faðir minn var tekinn í fóstur til þeirra Brautarholtshjóna, Sigurðar og Jóhönnu Steinsdóttur frá Stóru-Gröf. Faðir minn var eins ár þegar hann var tekinn í fóstur til þeirra hjóna, en faðir föður míns, Stefán Bjarnason á Halldórsstöðum deyr frá 10 börnum sem voru á ýmsum aldri, 1902.Meira -
Mýs og menn í Fljótum
Sláttur er hafinn í Fljótum en það voru bændurnir á Brúnastöðum sem riðu á vaðið þann 27. júní. „Það þykir snemmt hér í Fljótum,“ segir í færslu bóndans á Molastöðum á Sveitin okkar – Fljótin á Facebook.Meira -
Aðsóknarmet á HipFest 2026
Um nýliðna helgi fór brúðulistahátíðin HIP Fest 2026 fram á Hvammstanga en það er Handbendi brúðuleikhús sem hefur veg og vanda að hátíðinni sem er magnað menningarframtak á landsbyggðinni. Þetta var í fimmta sinn sem hátíðin er haldin og óhætt að fullyrða að hún verði glæsilegri með hverju skiptinu. Samkvæmt heimildum Feykis var slegið aðsóknarmet á hátíðinni sem vonandi heldur áfram að vaxa og dafna.Meira -
Lokað fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi af margþættum ástæðum
Lokað hefur verið fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi. Dagur Torfason, landeigandi að Fosslaug og Reykjafossi, gaf frá sér yfirlýsingu á Facebook þar sem hann sagði frá ákvörðuninni. Bæði laugin og fossinn hafa verið vinsælir ferðamannastaðir en landið er nærri Varmahlíð.Meira
