Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra hættir störfum

Páll Björnsson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra.
Páll Björnsson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra.

Páll Björnsson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra hefur sagt starfi sínu lausu en hann hefur gegnt því starfi frá stofnun þess er lögregluembættin á Blönduósi og Sauðárkróki voru sameinuð í ársbyrjun 2015. Páll, sem er komin á 69. aldursár, segist þeirrar skoðunar að menn eigi að hætta störfum áður en þeir verði að gera það við 70 ára aldur. Starfslok hans verða 31. mars nk.

Páll stóð frammi fyrir því verkefni að sameina tvö rótgróin embætti í sitthvorri sýslunni.  Hann telur að í umræðunni um fækkun embættanna hafi verið alið á of miklum væntingum hjá lögreglumönnum um kosti og gagnsemi breytinganna. „Kostirnir munu væntanlega skila sér til langs tíma, en þessi fyrstu ár ganga út á það að halda áfram að reka löggæslu með svipuðum mannafla, vinnuaðstöðu og tækjabúnaði og hingað til.“

Í Feyki, sem kemur út í dag, er Páll spurður út í þá gagnrýni sem yfirstjórn lögreglunnar hefur fengið eftir sameiningu, en m.a. var sagt frá því í haust að ólga væri innan lögreglunnar á Norðurlandi vestra. Segir hann m.a. frá því að haldinn hafi verið starfsdagur þann 15. nóvember sl. og var þá fenginn sérfræðingur til þess að flytja fyrirlestur um samskipti á vinnustöðum. Á þessum fyrirlestri hafi verið gerður listi yfir það sem starfsmenn getu gert til þess að efla vinnustaðinn og eru 16 atriði á listanum. Páll segir að þessi vinna standi enn yfir og ekki sé vitað hvenær henni lýkur.

Nánar í Feyki í dag.

Fleiri fréttir