Málverk Vinnuskólans

Fjöllistahópurinn með málverkið góða

Fjöllistahópur vinnuskóla Skagafjarðar fer  í fyrirtæki þessa dagana og biður verkstjóra eða eigandur um  að mála litla mynd á striga sem fjöllistahópurinn gengur með  á milli staða.

Meðal annars eru N1 og Skagfirðingabúð  búin að taka mjög vel i þetta og máluðu fulltrúar fyrirtækisins lógóið sitt. Fjöllistarhópurinn á eftir að fara í mörg fyrirtæki þessa  vikuna en þetta er meðal annars eitt af verkefnum vikunnar hjá þeim á meðan 2 úr hópnum fara daglega á Feyki og fá starfsþjálfun.

Gísli Þráinn Kristjánsson og Anna Marti

Fleiri fréttir