Margir reyndu við myndagátu Feykis

Dregið hefur verið úr fjölmörgum réttum lausnum á myndagátu sem birtist í Jólablaði Feykis. Lausn gátunnar er eftirfarandi: Íslendingar fengu tvisvar tækifæri á árinu til að kjósa sér æðstu embættismenn þjóðarinnar, forseta og þingmenn/alþingismenn.

 

Nöfn þriggja heppinna myndagátulausnara voru dregin út og eru vinningarnir farnir af stað til þeirra.

  1. Þorbjörn Ágústsson Sporði 531 Hvammstangi  fær nýjustu Skagfirðingabók
  2. Ásrún Leósdóttir Nátthaga 20, 551 Sauðárkróki (dreifbýli) fær Safnljóð Gísla Þórs Ólafssonar auk Gillon disks og ljóðabókar Móheiðar Hlífar Geirlaugsdóttur, Flygildi.
  3. Kristmundur Valberg Skúlabraut 39 540 Blönduós fær Skagfirskar skemmtisögur 5

 

Feykir þakkar öllum fyrir þátttökuna og óskar vinningshöfum til hamingju.

Fleiri fréttir