Miðar á Króksblót tilvalin bóndadagsgjöf

Allt í gangi á Króksblóti. Myndina tók Pétur Ingi Björnsson.
Allt í gangi á Króksblóti. Myndina tók Pétur Ingi Björnsson.

Forsala á hið árlega Króksblót hefst í Blóma- og gjafabúð Sauðárkróks í dag á bóndadaginn. Í tilkynningu frá árgangi ´64 er mikil eftirspurn eftir miðum og hver að verða síðastur að kaupa fyrsta miðann. Miðaverð hefur verið lækkað og er því búist við margmenni á þorrablótið ok mikil eftirvænting í loftinu.

„Samkvæmt langtíma veðurspá verður áframhaldandi vetrarblíða og því von á straumi brottfluttra á þorrablótið,“ segir í tilkynningunni. „Í tilefni af bóndadeginum viljum við strákarnir í árgangi ´64 benda konum á að miðar á þorrablótið er tilvalin bóndadagsgjöf.“

Fleiri fréttir