Námsgögn ókeypis í grunnskólum Skagafjarðar

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að námsgögn í grunnskólum Skagafjarðar verði kostnaðarlaus frá og með næsta skólaári. 

Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að með þessari ákvörðun bætist Sveitarfélagið Skagafjörður í hóp þeirra sveitarfélaga sem þegar hafa ákveðið að bjóða nemendum sínum ókeypis námsgögn.

Uppfært: Upphaflega stóð í fréttinni að Sveitarfélagið taki þátt í útboði Ríkiskaupa vegna kaupa á þeim námsgögnum sem algengust eru. Það mun ekki vera rétt.

Fleiri fréttir