Námskeið í meðferð slökkvitækja

Eldar slökktir. Mynd:FE
Eldar slökktir. Mynd:FE

Starfsfólk sundlauga og íþróttahúsa í Skagafirði sátu í dag námskeið í meðferð slökkvitækja hjá Brunavörnum Skagafjarðar. Leiðbeinendur voru  þeir Hreiðar Örn Steinþórsson og Guðmundur R. Guðmundsson, slökkviliðsmenn. Þátttakendur á námskeiðinu voru 16 talsins. Á námskeiðinu var farið yfir ýmsar tegundir slökkvitækja og við hvaða aðstæður hver tegund hentar best. Þá var kynnt athyglisverð nýung sem er ný tegund reykskynjara sem endast í tíu ár án þess að skipta þurfi um rafhlöðu, þá er þeim einfaldlega skipt út fyrir nýja.  Starfsmenn fengu síðan þjálfun í beitingu tækjanna þar sem mismunandi eiginleikar hinna ýmsu slökkviefna komu í ljós.Hópurinn við Slökkvistöðina. Mynd:FE

Að sögn Þorvaldar Gröndal, forstöðumanns frístunda- og íþróttamála hjá Sveitarfélaginu Skagafirði var námskeið þetta einn þáttur í endurmenntun starfsmanna en námskeið sem þetta hefur ekki verið haldið fyrr fyrir þennan hóp. 

Fleiri fréttir