Norræn hvalaskoðun á Hólum
Ferðamáladeild Háskólans á Hólum býður alla velkomna heim að Hólum á erindi í fyrirlestrarröðinni Vísindi og Grautur þriðjudaginn 4. apríl nk. klukkan16.00. Þar mun dr. Hin Hoarau-Heemstra, lektor við Viðskiptaháskólann í Bodø ræða um nýsköpunarreynslu af norrænni hvalaskoðun.
Fjallað verður um rannsóknir í ferðamálum sem Hoarau-Heemstra hefur stundað við Nord Háskólinn í Bodø síðan 2009. Fjallað verður m.a. stuttlega um verkefnið Norður-innsýn (e. Northern Insights) og önnur minni verkefni sem Háskólinn vinnur að. Nýsköpun hefur verið lykilatriði í rannsóknum hennar og mun Hoarau-Heemstra ræða hvernig þau túlka nýsköpun í samhengi við upplifun ferðamanna.
Hoarau-Heemstra hefur rannsakað nýsköpun í íslenskum og norskum hvalaskoðunarfyrirtækjum sem hluta af doktorsrannsókn sinni sem hún varði árið 2015. Í sinum fyrirlestri kynnir hún mikilvægustu niðurstöður rannsóknar. Jafnframt mun hún fjalla um verkefni sem er í gangi og snúa að sjálfbærni, vottun og nýsköpun í norrænni ferðaþjónustu.
Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku.
Boðið er upp á kaffi og kökur