Nýi Edduverðlaunagripurinn smíðaður í FNV
Tilnefningar til Edduverðlaunanna voru kynntar við hátíðlega athöfn í Bíó Paradís í gær. Þar var einnig frumsýnd ný Eddu-verðlaunastytta. Gripurinn er smíðaðar í málmiðnadeild FNV en hönnuð af Árna Páli Jóhannessyni.
Á vísi.is segir að styttan, sem er kassalagaður verðlaunagripur með stálkúlu inn í, hafi strax vakið athygli. Haft er eftir Árna Páli að hann hafi viljað gera styttu sem hefði tengingu við kvikmyndagerð. Flestar slíkar styttur séu frænkur óskarsverðlaunastyttunnar eða einhvers konar gripir úr gleri. Hér má sjá myndband á visi.is sem sýnir styttuna.
„Hún er sett saman með fallegu handverki eins og frá góðu handverksmönnum fagsins, ekki steypt eins og fjöldaframleiðsla nútímans. Hún þjónar meira að segja framleiðendum og leikstjórum. Það er hægt að berja með henni. Hún þjónar sminkum, það er spegill í henni, Hún þjónar aðal og auka leikurum, þeir sjá sjálfa sig í henni, það er hægt að rúlla henni eftir trakki fram og til baka það er fyrir tökumanninn, umhverfið speglast í henni það er fyrir þáttagerðafólk, búninga og leikmynd, það skröltir hóflega í henni það er fyrir hljóðið, það er hægt að glamra á hana tónlist, hún varpar ljósi betur en nokkur reflector, gripparar geta notað hana sem hallamál,“ segir Árni Pál m.a. í samtali á vísi.is.