Nýtt lag af væntanlegri plötu Contalgensins
feykir.is
Skagafjörður
19.07.2012
kl. 12.01
Nýverið gaf Contalgen Funeral út lagið Not Dead Yet sem fyrirrennara fyrir væntanlega plötu sem mun bera nafnið Pretty Red Dress og verður fáanleg í lok mánaðarins. Lagið er nú komið í spilun á Rás 2 og má velja það inná Vinsældarlista Rásar 2.
Gísli Þór Ólafsson hinn geðþekki bassaleikari hljómsveitarinnar segir að næst á dagskrá hjá bandinu er Bræðslan á Borgarfirði eystra, seinustu helgina í júlí.
Hægt er að heyra hið stórgóða lag Not Dead Yet HÉR.
