Óvissa með húsnæði leikskólans á Hofsósi

Leikskólinn á Hofsósi. Mynd: skagafjordur.is
Leikskólinn á Hofsósi. Mynd: skagafjordur.is

Eins og Feykir hefur sagt frá stóð til að flytja leikskólann á Hofsósi úr því húsnæði sem hann er starfræktur í í dag og í húsnæði í eigu sveitarfélagsins að Austurgötu 5. Ástæða flutninganna er að mygla fannst á lofti húsnæðisins með tilheyrandi óþef og þótti ekki forsvaranlegt að hafa starfsemi í því ljósi og hafist var handa við að innrétta íbúðina til að geta tekið við starfsemi leikskólans. Nú er hins vegar komin upp ný staða og óvíst að leikskólinn flytji í fyrrgreint húsnæði.

Herdís Sæmundardóttir fræðslustjóri Svf. Skagafjarðar segir rétt að ekki sé víst að leikskólinn fari í það húsnæði sem fyrirhugað var en segist ekki getað tjáð sig að svo stöddu um ástæðuna. „Ekki er þó búið að taka formlega ákvörðun um málið og aðrar lausnir eru ekki alveg í sjónmáli ennþá,“ segir Herdís.

Anna Árnína Stefánsdóttir leikskólastjóri segir að þar sem mygla sé í núverandi húsnæði og með hagsmuni barna og starfsfólks í huga þá telji hún ekki rétt að vera í húsnæðinu áfram. „Það er verið að skoða málið og að svo stöddu get ég ekkert tjáð mig um það frekar,“ segir Anna.

Tengd frétt: Skólarnir á Hofsósi undir eitt þak.

 

Fleiri fréttir