Óvíst hvaða lægð stjórni veðrinu næstu daga

Mikið frost verður á Norðurlandi í lok vikunnar ef spár ganga eftir.
Mikið frost verður á Norðurlandi í lok vikunnar ef spár ganga eftir.

Vaxandi norðaustanátt er í kortum Veðurstofunnar fyrir Strandir og Norðurland vestra en í nótt er gert ráð fyrir 15-23 m/s, hvassast á annesjum og Ströndum. Víða snjókoma, en slydda við sjóinn til morguns. Minnkandi vindur og úrkoma síðdegis á morgun. Norðaustan 8-13 og él annað kvöld, en hægari og þurrt að kalla í innsveitum.

Í hugleiðingu veðurfræðings segir að nú sé 970 mb lægð á austurleið skammt suður af landinu og veldur hún norðaustan hvassviðri eða stormi um mestallt land. Snjókoma eða slydda norðan- og austanlands með erfiðum akstursskilyrðum eða jafnvel ófærð. Gott er að hafa í huga hið fornkveðna, að það er verra veður á fjallvegum en á láglendi, segir veðurfræðingurinn.

„Á morgun nálgast fleiri lægðir landið, en þeim gengur illa að koma sér saman um hver eigi að ráða veðrinu. Það má segja að myndist millibilsástand sem þýðir það að vindur verður lengst af hægur á morgun, en snjómugga gerir vart við sig í flestum landshlutum.

Á miðvikudag og fimmtudag er útlit fyrir að deilan leysist, lægð fyrir austan land tekur völdin og möguleiki er á að berist til okkar mjög kalt loft beint norðan úr Íshafinu. Þá gætu tveggja stafa frosttölur látið sjá sig á mælum, en slíkt hefur verið sjaldgæft í vetur. Eins og svo oft í norðanáttinni, þá snjóar á norðanvert landið, en bjart syðra.

Nýjasta langtímaspá kom í hús nú á sjöunda tímanum og samkvæmt henni er útlit fyrir að kuldakastinu sé lokið á sunnudaginn því þá verði komin sunnanátt og hlýni á landinu.“

Fleiri fréttir