Prinsessukjólarnir í uppáhaldi

Dóttirin í löggupeysu sem Sandra pjónaði. Myndir úr einkasafni.
Dóttirin í löggupeysu sem Sandra pjónaði. Myndir úr einkasafni.

Í prinsessukjól.Prjónakonan Sandra Halldórsdóttir á Sauðárkróki deildi sýnishornum af verkum sínum í 21. tölublaði Feykis. Hún hefur alltaf haft gaman af hannyrðum og segist ekki geta slakað á nema hafa prjónana í höndunum.

Hve lengi hefur þú stundað hannyrðir?  

Ég held ég hafi alltaf haft gaman af hannyrðum bara frá því ég var krakki enda á ég ekki langt að sækja það. Móðuramma mín og -afi hafa alla tíð verið mikið hannyrðarfólk og leitaði ég mikið til þeirra með alls konar hugmyndir. Amma saumaði og heklaði en afi var í bílskúrnum að smíða. Þegar ég var unglingur minnkaði áhuginn mikið og var það ekki fyrr en árið 2009 að ég tók upp prjónana og ætlaði mér að prjóna lopapeysu handa þáverandi kærasta. Ég hafði ekki prjónað frá því ég var í textílmennt í grunnskóla en ég hafði þó góða trú á sjálfri mér. Ég ákvað þó að byrja á aðeins minna stykki og keypti garn í barnapeysu. Ég var nú ekki lengi að ná upp tækninni en lenti þó í smá vandræðum með hvernig ég ætti að tengja ermarnar við bolinn en með mömmu á línunni þá hafðist þetta á þrjóskunni. Ég kláraði peysuna á einni helgi og nú hef ég ekki tölu á þeim peysum sem ég hef prjónað.

Áhuginn á handavinnu varð til þess að ég ákvað að skrá mig í kennaranám við Háskóla Íslands árið 2012 til þess að læra verða textílkennari. Ég útskrifaðist með B.Ed. í fagreinakennslu í grunnskóla árið 2015. Ég byrjaði í mastersnámi til að næla mér í kennsluréttindin en ákvað að taka mér pásu eftir fyrstu önnina og flutti aftur heim í Skagafjörð. Ég lærði þó helling á þessum þremur árum og fékk innsýn í alls konar hannyrðir.

Hvaða handavinnu þykir þér skemmtilegast að vinna?

Ég held ég geti sagt að prjón sé enn í miklu uppáhaldi enda get ég varla slakað á nema hafa prjóna í höndunum. Hönnun og smíði heillar mig reyndar mjög mikið og er aldrei að vita nema ég skrái mig í nám tengt því.

Hverju ertu að vinna að um þessar mundir? 

Ég var að enda við að ganga frá þrem lopapeysum og er við það að klára þá fjórðu. Þetta eru nú bara peysur sem ég hef verið að dunda mér við þegar ég á rólega stund en ég er að vinna í að gera upp íbúðina mína sem ég var að eignast.

Hvernig fékkstu hugmyndina?

Ég fæ svo ótal margar hugmyndir og oft á dag að ég bara man ekki hvernig ég fékk hugmyndirnar. Ætli mig hafi ekki bara langað til að prjóna eitthvað og þá urðu til þessar fínu peysur.

Hvaða handverk sem þú hefur unnið ert þú ánægðust með?

Ég held ég sé ánægðust með prinsessukjólana sem ég prjónaði á yngri stelpuna mína þegar hún var aðeins yngri og vildi aldrei vera í neinu nema kjól. Ég gerði nokkra kjóla eftir Disney prinsessunum Elsu og Önnu úr Frozen, Þyrnirós og Garðabrúðu. Þessir kjólar voru í miklu uppáhaldi. Einnig gerði ég löggupeysu fyrir hana á öskudaginn og breytti stúdentshúfunni minni í lögguhatt, - það vakti lukku í búðunum.

Fleiri fréttir