Rumba í lok mánaðar

Myndin er tekin til suðausturs frá Sauðárkróki sl. mánudag. Mynd: PF
Myndin er tekin til suðausturs frá Sauðárkróki sl. mánudag. Mynd: PF

Þriðjudaginn 7. febrúar sl. komu sextán félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar sem stóð yfir í 25 mínútur. Farið var yfir veðurspá janúarmánaðar. Snjór var heldur fyrr á ferðinni en reiknað var með, en kom engu að síður þannig að ágæt sátt var um spána. Nýtt tungl kviknaði 28. jan. í  NV og er það ráðandi fyrir veðurfar í þessum mánuði. Síðan kviknar nýtt tungl 26. febrúar  í S. og er góutungl. Nokkrir draumar klúbbfélaga benda til þess að veður í febrúar verði svipað og það var í janúar. Vindar blási úr öllum áttum og hitastig verði hátt miðað við árstíma. Í lok mánaðar má gera ráð fyrir einhverri rumbu, sem þó stendur stutt.

 Veðurvísa  fyrir febrúar og mars

Febrúar á fannir
þá læðist geislinn lágt.
Í mars þá blæst oft biturt,
en birtir smátt og smátt.

Veðurstofan spáir hins vegar kólnandi veðri næstu daga en gert er ráð fyrir norðaustlægri eða breytileg átt, 3-10 m/s á morgun. Skýjað að mestu og sums staðar él norðantil á landinu og hiti um og undir frostmarki, en yfirleitt þurrt um landið sunnanvert og hiti 0 til 5 stig.

Á föstudag verður úrkomulítið norðantil fram yfir hádegi, en síðan dálítil slydda eða snjókoma. Hiti yfirleitt 0 til 6 stig. Á laugardag verður norðaustan 5-10 og él norðantil, en þurrt að mestu fyrir sunnan. Hæglætisveður og víðast þurrt síðdegis. Kólnar lítið eitt í veðri. 

Fleiri fréttir