Samningur um áfangastaðastofu Norðurlands

Þórdís Kolbrún og samstarfsaðilar við undirritun samningsins. MYND AF SSNV.IS
Þórdís Kolbrún og samstarfsaðilar við undirritun samningsins. MYND AF SSNV.IS

Á heimasíðu SSNV segir frá því að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað samning við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra um stofnun áfangastaðastofu á Norðurlandi. Með undirritun samningsins eru orðnar til áfangastaðastofur í öllum landshlutum, að undanskildu höfuðborgarsvæðinu, en stofnun áfangastaðastofu þar er í undirbúningi.

Er þá lokið vinnu við uppbyggingu stoðkerfis ferðaþjónustu á landsbyggðinni sem hófst með útgáfu áfangastaðaáætlanafyrir alla landshluta árið 2018.

Í frétt SSNV af málinu kemur fram að áfangastaðastofur hafi „...það að meginmarkmiði að stuðla að jákvæðum framgangi svæðisbundinnar ferðaþjónustu með framkvæmd áfangastaðaáætlunar fyrir viðkomandi landsvæði og tryggja að sú áætlun sé í samræmi við m.a. aðra lögbundna áætlanagerð og aðal- og deiliskipulag viðkomandi svæði.

Landshlutasamtökin tvö á Norðurlandi hafa um árabil átt farsælt samstarf við Markaðsstofu Norðurlands. Markaðsstofan mun í framhaldi af fyrrgreindum samningi taka að sér hlutverk áfangastaðastofu fyrir Norðurland.

Heimild: SSNV.is

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir