Sat í stjórn í einn dag

Stefán Vagn Stefánsson. Mynd Skagafjörður.is
Stefán Vagn Stefánsson. Mynd Skagafjörður.is

Stefán Vagn Stefánsson á Sauðárkróki var í fyrradag kjörinn af Alþingi í stjórn Ríkisútvarpsins samkvæmt tilnefningu Framsóknarflokksins. Seta Stefáns í stjórninnni stóð þó ekki lengi, eða einungis í sólarhring, þar sem kjör hans stangaðist á við lög um kjörgengi fulltrúa í stjórnina en þar eru sveitarstjórnarfulltrúar ekki kjörgengir.  Sama átti við um Kristínu Maríu Birgisdóttur frá Grindavík. Í samtali við fréttastofu útvarps í gær sagði Stefán Vagn að hann hefði gjarna viljað sitja lengur en sólarhring í stjórninni en mönnum hefði yfirsést þetta við kosninguna.

Í stað Stefáns var Guðlaugur Sverrisson kjörinn í stjórn Ríkisútvarpsins og sæti Kristínar Maríu tók Birna Þórarinsdóttir. Auk þeirra skipa stjórnina Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Brynjólfur Stefánsson, Jón Jónsson, Friðrik Rafnsson, Jón Ólafsson, Lára Hanna Einarsdóttir, og Mörður Árnason. 

Fleiri fréttir