Séraðgerðir fyrir Skagafjörð vegna Covid-19 falla úr gildi á miðnætti á morgun

Á fundi aðgerðastjórnar almannavarna á Norðurlandi vestra fyrr í dag, var tekin sú ákvörðun að óska ekki eftir því við heilbrigðisráðuneytið að framlengd verði sú reglugerð sem sett var fyrir sveitafélagið Skagafjörð og Akrahrepp, vegna hópsmits sem upp kom á svæðinu um og fyrir sl. helgi. Á heimasíðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra segir að jafnframt muni aðrar sóttvarnaraðgerðir sem aðgerðastjórn greip til og gilda til og með morgundagsins, sunnudagsins 16. maí ekki verða framlengdar.

„Þetta þýðir að frá miðnætti, sunnudagskvöldsins 16. maí gildir fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Akrahrepp reglugerð heilbrigðisráðherra, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, sem sett var 7. maí sl. með þeim takmörkunum sem þar er kveðið á um.

Aðgerðastjórnin telur að með þeim aðgerðum sem að gripið var til, hafi tekist að ná tökum á hópsmitinu. Engin smit hafa greinst utan sóttkvíar í síðastliðinni viku,“ segir í færslunni og ítrekar aðgerðastjórnin að íbúar gæti að sínum einstaklingsbundnu sóttvörnum og mæti alls ekki til vinnu eða á aðra þá staði hvar fólk kemur saman sé það með einhver einkenni, heldur panti tíma í skimun á heilsuvera.is eða hafi samband við Heilbrigðisstofnun Norðurlands.

„Aðgerðastjórn vill koma á framfæri þakklæti til íbúa, fyrirtækja og stofnana fyrir samstöðu og samheldni í þessu verkefni. Enn og aftur munum sóttvarnirnar, sprittum okkur, notum grímur og munum fjarlægðarmörk,“ segir í tilkynningu aðgerðarstjórnarinnar.

Tveir greindust jákvæðir fyrir Covid-19 í gær á Sauðárkróki og því 16 manns komnir í einangrun. Á FB-síðu lögreglunnar segir að þessir aðilar hafi báðir verið í sóttkví.
„Það fækkar mikið í sóttkvínni milli daga sem er mjög jákvætt að þau skulu vera neikvæð. Höldum áfram vöku okkar!!“ segir í færslunni en alls 114 luku sóttkví í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir