Síðasti dagur jóla í dag
Þrettándinn er í dag 6. janúar, þrettándi og síðasti dagur jóla og Kertasníkir kemur sér heim til sín seinastur þeirra bræðra. Vaninn er að fólk kveðji jólin með einhverjum hætti, s.s. að fara á þrettándabrennu eða skýtur upp síðustu flugeldunum en m.a. verður hægt að nálgast flugelda hjá Sagfirðingasveit í dag. Hjá þeim verður flugeldasalan opin í dag milli klukkan 15 og 20 í Sveinsbúð á Sauðárkróki og hægt verður að gera góð kaup því 30% afsláttur verður af af öllum vörum þeirra. Ein þrettándabrenna verður á Norðurlandi vestra þar sem ungmennafélagið Dagsbrún mun sjá um brennu við Gilstaði í Hrútafirði og hefst hún klukkan 18:00.
Á Vísindavefnum segir að um það bil tveim öldum eftir dauða Jesú tóku kristnir menn að velta fæðingardegi Jesú fyrir sér en fyrsti fæðingardagur Jesú, sem menn komu sér saman um, var 6. janúar samkvæmt rómversku tímatali.
„Þetta var að vísu eldri tyllidagur og tengdist flóðunum í Níl. Hann nefndist nú Opinberunarhátíð (Epiphania) en sagt var að Jesús hefði opinberast á fjóra vegu: við fæðinguna, tilbeiðslu vitringanna, skírnina í ánni Jórdan og brúðkaupið í Kana þegar hann framdi fyrsta kraftaverkið.
Þegar yfirvöld í Rómaborg gerðu kristindóm að ríkistrú seint á 4. öld, ákváðu þau að gera eldri skammdegishátíð sína að fæðingardegi Jesú Krists. Þetta var sólhvarfadagurinn, sem hét formlega „dagur hinnar ósigrandi sólar“ (l. dies natalis Solis invicti). Sólhvörfin færast til í júlíanska tímatalinu en þau bar um þetta leyti upp á 25. desember.
Nú var af miklum lærdómi leitast við að sanna að einmitt þessi dagur væri hin rétta fæðingarstund Krists. Þeirri hugmyndafræði var einnig haldið á loft að Kristur væri hin eina sanna sól, sól réttlætisins, sem hefði sigrað dauðann og hafði sjálfur sagst vera ljós heimsins.
Þessi ráðstöfun olli að sjálfsögðu nokkurri togstreitu við Austurkirkjuna sem í um það bil tvær aldir hafði haldið upp á 6. janúar sem fæðingardag Krists. Sú málamiðlun var loks gerð að fæðingardagurinn yrði 25. desember en minning hinnar mikilvægu skírnar 6. janúar. Báðir dagarnir voru því stórhátíð ásamt áttunda degi frá fæðingardeginum, 1. janúar, en þá var líka minnst umskurnar Krists. Dagarnir á milli voru hálfheilagir. Þannig eru jóladagarnir 13 til komnir og sjálfur þrettándi dagur jóla eða þrettándinn.“